Public deli
Public deli

Fréttir

Auknar líkur á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi næstu daga
Upphaf eldgossins 16. mars séð frá byggðinni í Vogum á Vatnsleysuströnd. VF/Hilmar Bragi
Föstudagur 10. maí 2024 kl. 18:08

Auknar líkur á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi næstu daga

Lítil breyting hefur orðið á landrisinu eftir að eldgosinu lauk. Kvikusöfnun heldur áfram á sama hraða og áður. Í dag má gera ráð fyrir að um tæpir 14 milljónir rúmmetra af kviku hafi bæst við í kvikuhólfið frá því að eldgosið hófst 16. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands nú síðdegis.

Í fyrri kvikuhlaupum og eldgosum hafa um 8 til 13 milljónir rúmmetra bæst við í kvikuhólfið undir Svartsengi milli atburða áður en kvikan hleypur úr kvikuhólfinu yfir í Sundhnúksgígaröðina. Nú er magn kviku sem bæst hefur við komið upp fyrir efri mörkin, en reynslan frá Kröflueldum sýnir að eftir því sem kvikuhlaupum fjölgar þarf meiri þrýsting til að koma þeim af stað. Því verður að teljast líklegt að kvika hlaupi aftur úr kvikuhólfinu undir Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, en nokkur óvissa er um hvenær nægilegum þrýstingi verður náð til að koma nýju kvikuhlaupi af stað og að kvika nái til yfirborðs.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Graph_inflation_mogi_is_09052024_NEW

Línuritið sýnir áætlað magn kviku sem hefur bæst við undir Svartsengi á milli þeirra eldgosa eða kvikuhlaupa sem hafa orðið frá því í nóvember 2023. 

Sólarhringsvakt Veðurstofunnar heldur áfram að fylgjast náið með virkninni. Nýjar gossprungur gætu opnast á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells og hraunflæði gæti orðið sambærilegt við upphafsfasa síðustu eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni. Það gæti gerst með mjög stuttum eða engum fyrirvara. Merki um nýtt kvikuhlaup væru líkt og áður,  staðbundin smáskjálftahrina í og við kvikuganginn, hröðun í aflögun og þrýstingsbreytingar í borholum á svæðinu.

Aukin skjálftavirkni hefur verið að mælast á Sundhnúksgígaröðinni síðusta daga. Þessi aukning í skjálftavirkni er líklega merki um spennulosun í og við kvikuganginn á Sundhnúksgígaröðinni vegna aukins kvikuþrýstings í kvikuhólfinu undir Svartsengi. 

Í nótt varð sólarhringsvakt Veðurstofunnar vör við aukna og staðbundna skjálftavirkni suður af Stóra-Skógfelli, eða á svipuðum stað og fyrri kvikuhlaup hafa byrjað.  Aflögunar- og þrýstingsmælingar, sem væru merki um kvikuhlaup, sýndu ekki marktækar breytingar. Virknin stóð yfir í frekar stuttan tíma, en ekki er hægt að útiloka að þarna hafi lítið magn kviku verið að brjóta sér leið.

Varasamt að vera á ferðinni á Sundhnúksgígaröðinni

Veðurstofan hefur gefið út uppfært hættumat. Það að síðasta gosi sé lokið hafði áhrif á breytingar á nokkrum svæðum, en hættumatið nú endurspeglar hættur í tengslum auknar líkur á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi.

Þar sem jarðskorpan á umbrotasvæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells er mikið sprungin er líklegt að kvika eigi greiða leið til yfirborðs og því muni ekki mikil skjálftavirkni fylgja þeim umbrotum. Fyrirvarinn á nýju eldgosi getur því orðið mjög stuttur eða jafnvel enginn. Því er mjög varasamt að vera á ferðinni á svæði 3 eins og það er skilgreint á hættumatskorti Veðurstofunnar.

Nýtt hættumat gildir til 17. maí að öllu óbreyttu.

Haettusvaedi_VI_10mai_2024_NYTT